|
Fáninn er bók sem inniheldur tillögur almennings að hönnun íslenska fánans árið 1914.
Árið 1913 lagði fánanefnd, skipuð af ráðherra Íslands, Hannesi Hafstein, fram tillögu að nýjum íslenskum þjóðfána, fánanum sem við þekkjum í dag. Í skýrslunni voru einnig listaðar tillögur almennings um hönnun íslenska fánans. Í þessari bók eru þessar 28 tillögur sem nefndar voru í skýrslunni teiknaðar upp og sýndar saman í fyrsta sinn.
Bókin er 68 blaðsíður og prentuð í sex sérlitum. Hún er bæði á íslensku og ensku og er fáanleg í verslunum um allt land.
Bókin kom út 1. desember 2008, á 90 ára afmæli fullveldis Íslands og í tilefni þess fékk forseti Íslands, herra Ólafur Ragar Grímsson, fyrsta eintakið.
|
|
|
|