October 6th, 2008
Við höfum töluvert skemmtilegri að hugsa um hérna á Hagamelnum heldur en bankamenn sem eru að svitna yfir næstu vikum. Í staðin erum við að undirbúa íbúðina fyrir hana Tölu, sem styttist í að komi. Skúffur hafa verið tæmdar og svo fylltar af pínu litlum fötum. Aðrar skúffur tæmdar til að taka þær. Búið að plana hornið sem rúmið verður í og svona. Svo fórum við um helgina og keyptum einn svona:

Posted in Almennt tuð | No Comments »
October 3rd, 2008
Posted in Almennt tuð | No Comments »
September 30th, 2008
Einu sinni var VAH hýst að Hafnarstræti 18 og þar ská á móti var hús, daglega nefnt Ziemsen húsið. Eftir að við fluttum á Vesturgötuna, þar sem við erum núna, var húsið þó tekið og fært út á Granda.
Í gær kom það aftur til okkar hinsvegar. Það var flutt hérna á lóðina beint á móti okkur, þar sem það verður gert upp og gert fínt.
Ætli það elti mig um aldur og æfi?








Posted in Almennt tuð | 2 Comments »
September 21st, 2008

Þegar ég var lítill bjó ég í Danmörku. Alla mína ævi hef ég sagt frá því hvernig ég flutti til Danmerkur þegar ég var nokkuð nýfæddur og flutti svo heim þegar ég var 4 ára.
Ég komst hinsvegar að því síðustu helgi, þegar ég fór með mömmu helgarferð norður, að þetta er bara ekki rétt. Ég bjó vissulega í Odense þegar ég var lítill … en við fluttum ekki heim fyrren ég var 6 ára. Ég er danskari um 2 ár en ég hélt.
Þetta meikar reyndar smá sens, því þegar ég fer að hugsa um þetta þá var ég aldrei í leikskóla hér á Íslandi, bara í skóla. Og maður byrjar víst ekki í skóla 4 ára.
Posted in Almennt tuð | 6 Comments »
September 20th, 2008

Ég er 29 ára í dag. Dagurinn er búinn að vera svaka fínn. Fékk fín föt frá frúnni, fórum svo í bíltúr og ég keypti mér afmælisgjöf frá mér til mín, osta og meira. Smá kökuveisla heima með góðu fólki. Svo er ég mestmegnis búinn að sitja heima, borða afgangskökur og lesa afmælisgjöfina sem ég gaf mér.
Af öðrum afmælisgjöfum ber þó helst að nefna fína nýja fatið sem ég fékk … sem ég var síðast að tala um í gær að mig langað að fá mér. Hver ætti ekki að verða ánægður með ofnfast-fat í afmælisgjöf? Reyndar er meiri hlutinn af afmælisgjöfunum sem ég fékk fyrir eldhúsið, því auk fatsins fékk ég steikartöng, eldhús-skeið (bein þýðing), segla fyrir hnífana mína og makkintoss nammi.
Pínu fyndið líka að ég fékk megnið af afmæliskveðjunum mínum í gegnum Facebook síðuna mína. Bæði er ég pínu sorgmæddur að ég dregst inn á Facebook meira og meira gegn mínum vilja … en aftur á móti held ég að ég hafi fengið afmæliskveðjur frá fólki þar sem ég hefði ekki annars fengið. Ég ætla samt að gera mitt besta til að elska aldrei Facebook.
En núna ætla ég að fara og njóta síðustu 44 mínútna afmælisins míns, borða smá meiri köku og lesa einn kafla eða svo.
Á næsta ári verður svo veisla. 
Posted in Almennt tuð | 1 Comment »
September 15th, 2008

Hann Stefán er kominn með þessa líka svaka fínu vefsíðu, þar sem má skoða fullt af hans fína dóti.
www.solson.is
Posted in Almennt tuð | No Comments »
September 10th, 2008

Ef þið eigið leið í gegnum Newcastle milli 9 og 26 október næstkomandi, kíkið við á þessa sýningu: Hidden in plain view.
Þarna verða 21 hönnuðir alls staðar úr heiminum með lítið verk, búið til fyrir þessa sýningu. Allir gerðu þeir póstkort sem er með földum skilaboðum. Gestir eiga svo að reyna að leysa gátuna og fá til þess 3 vísbendingar (eina í prentaða kynningarefninu, ein á vefsíðunni og ein á sýningunni). Sá sem finnur svarið fær að eiga það verk.
Tveir íslendingar eru þarna á meðal hönnuðanna, Katrín Ólína og svo hann ég.
Hérna getið þið séð vísbendinguna mína á netinu, og hluta af kortinu sem ég gerði.
Ef þið eigið leið þarna um, takið myndir handa mér. 
Posted in Almennt tuð | 2 Comments »
September 8th, 2008

Við erum (loksins) búin að koma okkur upp almennilegri heimasíðu í vinnunni. Núna er hægt að fara inn og skoða megnið af því sem hefur verið búið til hérna síðan 2003 (ég reyndar byrjaði ekki fyrren 2005).
Farið á atli.de og skoðið herlegheitin. 
Posted in Almennt tuð | 3 Comments »
September 7th, 2008

Það er allt komið í undirbúning fyrir fjölgunina á heimilinu. Búið að tæma skúffur (og reyndar hálf-fylla þær aftur af fötum í mjög litlum stærðum), henda gömlum fötum, fara með í geymslur og fleira. Og eitt er líka að setja upp mynda-síðu sem verður eflaust uppfærð mjög reglulega með myndum. Síðan er komin upp og meira segja komið inná hana slatti af myndum úr ferðalögum, veislum og meira að segja bumbumyndir, sónar og 3D sónar myndir.
Slóðin á síðuna okkar er larusson.smugmug.com og til að skoða hana þarftu lykilorð. Þú mátt giska á það eða senda mér eða Önnu ímeil og við sendum orðið um hæl.
Svo er líka forlát gestabók þarna sem við hvetjum ykkur til að nota. Þar má lýsa ást ykkar á okkur í ótakmörkuðu magni.
Posted in Almennt tuð | No Comments »
September 1st, 2008

Sjáið bara hvað hjólið mitt er orðið mega töff. Hann Trolli kom með, beinustu leið frá hinu framandi landi Danmörku, ljós á það.
Þetta eru ekki bara einhver ljós … o nei … þetta eru nútíma gamaldags dynamo ljós. Orkugjafinn er segulsvið sem myndast þegar ég hjóla, svo ég verð aldrei batteríslaus. Ljósin eru alltaf í gangi, þannig að ég þarf ekki að muna að kveikja eða slökkva á þeim. Það er ekkert viðnám, sem hægir á mér þegar ég þeysist um á hraða ljóssins (fattiði … ljósssins … ný ljós … haha).
Hjólið mitt er ofur pimpað!
Posted in Almennt tuð | 3 Comments »